Starf og árangur
Reynslusaga Eyþórs. | Reynslusaga Eyþórs. |
|
|
Eyþór, sem er 11 ára, var greindur með lesblindu fyrir 2 árum. Í framhaldinu var leitað til stjórnenda grunnskólans sem Eyþór er í og afráðið að hann fengi sérkennslu í lestri. Eftir u.þ.b. einn og hálfan vetur í sérkennslu var árangurinn ekki merkjanlegur, að mati okkar foreldrana. Sem dæmi þá þurfti orðið að lesa fyrir hann náttúrufræðina svo hann kæmist yfir námsefnið. Hljóðbækur voru notaðar með misjöfnum árangri. Annað sem ekki var hugsað út í er félagslega einangrunin sem fellst í því að vera tekinn út úr bekknum vegna lestrarörðuleika. Það kom ekki í ljós fyrr en seinna hvað það var þrúgandi fyrir Eyþór að mæta í sérkennsluna.
Í páskafríi grunnskólans nú í vetur var tíminn notaður til að fara á námskeið hjá Lesblinda ehf. Í fyrstu leit út fyrir að fjárfest hefði verið í föndurnámskeiði með leir. Tilfellið var að Eyþór skemmti sé ágætlega þessa 4 daga og lærði margt nýtt. Í dag leirum við saman og skemmtum okkur í leiðinni.
Í upphafi námskeiðisins var Eyþór fenginn til að lesa ákveðinn texta í tiltekinn tíma. Sama var gert í lok námskeiðisins. Breytingin var það mikil að erfitt var að trúa því að sama barn væri að lesa. Árangur Eyþórs á vorprófum var einnig góður.
Við, foreldrar Eyþórs, höfum sennilega sjaldan fjárfest í betri hlut en námskeiðinu hjá Lesblindu ehf. Ávöxtun þeirra fjármuna á eftir að verða mikil í námsárangri Eyþórs um ókomin ár.
Bestu kveðjur, Ólafur og Jóhanna. |

| Heim |
| Hafðu samband |
| Starf og árangur |
| Davis® - leiðrétting |
| Ron Davis |
| Nánar um lesblindu |
| Náðargjöfin |
| Tenglar |
| Greinar |
Skráið ykkur á póstlistann.