Hafđu samband

Hér getur ţú nálgast okkur

 

Starf & árangur

Hér er hćgt ađ skođa starf og árangur

Heim arrow Greinar arrow Nám fyrir fólk međ lestrar- og skriftarörđugleika
Nám fyrir fólk međ lestrar- og skriftarörđugleika Print

Jóna Margrét Ólafsdóttir skrifar um kennslu fyrir lesblinda

 

Image
Jón Margrét Ólafsdóttir
Jóna Margrét Ólafsdóttir skrifar um kennslu fyrir lesblinda: "Lesblindir skara oftar en ekki fram úr hvað varðar þrívíddarskynjun og aðra þá hæfileika sem ekki byggjast á lestri og skrift."

TILRAUNAKENNSLA fyrir lesblinda hófst hjá Mími – símenntun árið 2002. Námið er 95 kennslustundir samkvæmt námskránni "Aftur í nám" og meta má námið til allt að 7 eininga á framhaldsskólastigi. Alls hafa á annað hundrað fullorðinna einstaklinga lokið námi, breidd nemendahópsins er mikil, m.a. eru nemendurnir á aldrinum 18 til 67 ára, jafnt karlar sem konur.
"Aftur í nám" tekur yfir níu vikna tímabil og felst í sjálfsstyrkingu, einkatímum í lesþjálfun, íslenskunámi og tölvunotkun. Að loknu námi er markmiðið að nemendur hafi yfir að ráða aðferðum til að vinna bug á lesblindu sinni og ræðst það ekki síst af því að þeir nýti þessar aðferðir áfram til þjálfunar. Aðferðirnar sem verið er að nota eru óhefðbundnar og byggjast m.a. á þrívíddarskynjun, en einstaklingar með lesblindu hugsa alla jafna á myndrænni hátt en aðrir.

Oft hefur fólk ekki fengið viðurkenningu á lesblindu sinni og hefur því jafnvel slæmar minningar úr skóla. Það getur því reynst erfitt að stíga fyrstu skrefin í að fara ,,aftur í nám". Mímir – símenntun sérhæfir sig í kennslu fullorðinna og hafa starfsmenn Mímis mikla reynsla af því að taka á móti fólki sem glímir við erfiðar tilfinningar tengdar námi. Reynslan sýnir að eftir fyrstu tímana er hópurinn orðinn sterk liðsheild enda eiga þátttakendur samskonar reynslu að baki og hafa þurft að glíma við sams konar erfiðleika.
Aðferðir þær sem beitt er á ,,Aftur í nám" byggjast á kenningum Bandaríkjamannsins Ron Davis, sem sjálfur var lesblindur. Í kenningum Davis er gengið út frá því að lesblinda sé viss náðargáfa og að fólk með lesblindu hafi óvenjugóða þrívíddarskynjun eða rýmisgreind. Samkvæmt kenningum Davis og reynslu af kennslu lesblindra, skara lesblindir oftar en ekki fram úr hvað varðar sjónræna skynjun og aðra þá hæfileika sem ekki byggjast á lestri og skrift. Þessu má líkja við blinda sem oft þróa næmari heyrn en aðrir.
Þátttakendur í ,,Aftur í nám" hafa verið afar ánægðir með námið. Sumir telja það jafnvel hafa breytt lífi sínu og flestir segja það hafa orðið þeim hvatning til þess að fara í frekara nám.
Höfundur er verkefnastjóri hjá Mími – símenntun.
 

Random Image

DSC00670.jpg

Skráiđ ykkur á póstlistann.






Lesblinda.is

LESBLINDA
SKRIFBLINDA
REIKNIBLINDA
ATHYGLISBRESTUR
OFVIRKNI

Myndband

Hér er hægt að skoða sjónvarpsþáttinn
Fyrstu skrefin þar sem viðtal
er við þær,
Guðrúnu Benediktsdóttur og
Hólmfríði E. Guðmundsdóttur
hjá Lesblindu ehf.
[SKOÐA MYNDBAND]

Leirtímar

Leirhópur!

Mánudagar eru leirdagar!

Kl: 16:00 til 17:00
dyslexia.com