Hafðu samband

Hér getur þú nálgast okkur

 

Starf & árangur

Hér er hægt að skoða starf og árangur

Heim arrow Greinar
Greinar
"Get nú lesið skammlaust fyrir dóttur mína" Print
Image
Þorsteinn Gíslason og Dagný Þóra
Þorsteinn Gíslason með dóttur sína Dagnýju Þóru, 4 ára. Hann les nú glaður barnabækurnar með henni þeim báðum til ánægju.

ImageTalið er að 35 þúsund Íslendingar eigi við mismikla lestrarörðugleika að etja. Jóhanna Ingvarsdóttir skyggnist inn í heim Þorsteins Gíslasonar, sem kætist nú mjög yfir því að hafa sótt sér hjálp.

Þetta ferli hefur svo sannarlega opnað mér nýja sýn og nú lifi ég í gjörbreyttum heimi. Áður lifði ég í heimi lesblindunnar þar sem ég lét mér nægja að lesa fyrirsagnir í dagblöðum, átti mjög erfitt með að fylgjast með skjátexta í sjónvarpinu og forðaðist bækur eins og heitan eldinn," segir Þorsteinn Gíslason, 36 ára málmsteypumaður hjá Málmsteypunni Hellu í Hafnarfirði.
Lesa meira...
 
Nám fyrir fólk með lestrar- og skriftarörðugleika Print

Jóna Margrét Ólafsdóttir skrifar um kennslu fyrir lesblinda

 

Image
Jón Margrét Ólafsdóttir
Jóna Margrét Ólafsdóttir skrifar um kennslu fyrir lesblinda: "Lesblindir skara oftar en ekki fram úr hvað varðar þrívíddarskynjun og aðra þá hæfileika sem ekki byggjast á lestri og skrift."

TILRAUNAKENNSLA fyrir lesblinda hófst hjá Mími – símenntun árið 2002. Námið er 95 kennslustundir samkvæmt námskránni "Aftur í nám" og meta má námið til allt að 7 eininga á framhaldsskólastigi. Alls hafa á annað hundrað fullorðinna einstaklinga lokið námi, breidd nemendahópsins er mikil, m.a. eru nemendurnir á aldrinum 18 til 67 ára, jafnt karlar sem konur.
"Aftur í nám" tekur yfir níu vikna tímabil og felst í sjálfsstyrkingu, einkatímum í lesþjálfun, íslenskunámi og tölvunotkun. Að loknu námi er markmiðið að nemendur hafi yfir að ráða aðferðum til að vinna bug á lesblindu sinni og ræðst það ekki síst af því að þeir nýti þessar aðferðir áfram til þjálfunar. Aðferðirnar sem verið er að nota eru óhefðbundnar og byggjast m.a. á þrívíddarskynjun, en einstaklingar með lesblindu hugsa alla jafna á myndrænni hátt en aðrir.

Lesa meira...
 
Mamma var minn góði engill Print

 

Image
Ron Davis

Ron Davis með leirtákn, námstæki lesblindra.
Einhverfa og lesblinda mótuðu æsku og uppvaxtarár Ron Davis verkfræðings, sem er höfundar Davis-kerfisins gegn lesblindu. Hann segir hér Guðrúnu Guðlaugsdóttur frá lífi sínu og baráttunni við að læra að tala og lesa og verða "eðlilegur" maður, eins og hann orðar það.

Lesa meira...
 

Random Image

DSC01865.jpg

Skráið ykkur á póstlistann.






Lesblinda.is

LESBLINDA
SKRIFBLINDA
REIKNIBLINDA
ATHYGLISBRESTUR
OFVIRKNI

Myndband

Hér er hægt að skoða sjónvarpsþáttinn
Fyrstu skrefin þar sem viðtal
er við þær,
Guðrúnu Benediktsdóttur og
Hólmfríði E. Guðmundsdóttur
hjá Lesblindu ehf.
[SKOÐA MYNDBAND]

Leirtímar

Leirhópur!

Mánudagar eru leirdagar!

Kl: 16:00 til 17:00
dyslexia.com