Hafđu samband

Hér getur ţú nálgast okkur

 

Starf & árangur

Hér er hćgt ađ skođa starf og árangur

Heim arrow Starf og árangur
21 árs strákur Print

21 árs strákur

Ég var greindur lesblindur 9 ára og skólagangan hefur verið erfið.
Ég fór í Flugskólann í einkaflugmanninn en náði ekki öllum prófunum fyrir 3 árum síðan.
Nú ákvað ég að nota þá peninga sem ég átti í VR fræðslusjóðunum og fjárfesta í sjálfum mér.
Ég skellti mér á leiðréttingarnámskeið (Ron Davis). hjá Lesblinda.is
Ég fór síðan og gerði aðra tilraun með
Einkaflugmanninn og er í náminu núna.
Ég fékk 9,5 í fyrsta skyndiprófinu og 8,5 í því næsta.
Ég er miklu áhugasamari, ábyrgari og ánægðari.

Takk fyrir mig ;-)

p.s Þegar ég las reynslusögurnar áður en ég fór á námskeiðið
trúði ég því ekki að námskeiðið gæti breytt svona miklu.
En trúið mér það gerir það!

 
Reynslusaga Eyţórs. Print

Eyþór, sem er 11 ára, var greindur með lesblindu fyrir 2 árum. Í framhaldinu var leitað til stjórnenda grunnskólans sem Eyþór er í og afráðið að hann fengi sérkennslu í lestri. Eftir u.þ.b. einn og hálfan vetur í sérkennslu var árangurinn ekki merkjanlegur, að mati okkar foreldrana.  Sem dæmi þá þurfti orðið að lesa fyrir hann náttúrufræðina svo hann kæmist yfir námsefnið. Hljóðbækur voru notaðar með misjöfnum árangri.  Annað sem ekki var hugsað út í er félagslega einangrunin sem fellst í því að vera tekinn út úr bekknum vegna lestrarörðuleika. Það kom ekki í ljós fyrr en seinna hvað það var þrúgandi fyrir Eyþór að mæta í sérkennsluna.

 

Í páskafríi grunnskólans nú í vetur var tíminn notaður til að fara á námskeið hjá Lesblinda ehf. Í fyrstu leit út fyrir að fjárfest hefði verið í föndurnámskeiði með leir.  Tilfellið var að Eyþór skemmti sé ágætlega þessa 4 daga og lærði margt nýtt.

Í dag leirum við saman og skemmtum okkur í leiðinni.

 

Í upphafi námskeiðisins var Eyþór fenginn til að lesa ákveðinn texta í tiltekinn tíma. Sama var gert í lok námskeiðisins. Breytingin var það mikil að erfitt var að trúa því að sama barn væri að lesa. Árangur Eyþórs á vorprófum var einnig góður.

 

Við, foreldrar Eyþórs, höfum sennilega sjaldan fjárfest í betri hlut en námskeiðinu hjá Lesblindu ehf. Ávöxtun þeirra fjármuna á eftir að verða mikil í námsárangri Eyþórs um ókomin ár.

 

Bestu kveðjur,

Ólafur og Jóhanna.

 
15 ára stúlka Print

23.mars 2005

Ég var í leiðréttingu í janúar byrjun. Eftir það þá fór náttúrufræði að verða skemmtileg, ég er farinn að skilja hana betur.  Ég var í lestrarprógrammi en samt rauk stærðfræði einkunni mín í 9.0 . Undanfarið er ég búin að vera að taka vikulega  próf í stærðfræði og hef  verið að fá frá 7,5  til 10. 
Áður fyrr var ég með svona 3 í stærðfræði.

 
Móđir Print

Sent ári eftir námskeið:

Má til með að senda þér línu um son minn sem var hjá þér s.l. vor.

Hann hóf nám við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík s.l. haust eftir að hafa verið hjá þér á leslindunámskeiði.

Það hefur verið okkur foreldrunum sönn ánægja að fylgjast með honum s.l. vetur og sjá hvernig hann hefur vaxið í styrkleika hvað varðar námið og allt utanumhald á því.  Augljóslega hafði hann mjög gott af námskeiðinu hjá þér. 

Megi þér ganga vel með nemendur þína í framtíðinni.

 

 
15 ára stúlka Print

Mér gengur betur með að halda athygli í skólanum þegar ég beiti athyglisstillingunni eins og mér var kennt. Einkunnir mínar fara hækkandi og meira segja skil ég stærðfræðina betur. Allt gengur bara betur. 

 
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 Nćsti > Enda >>

Niđurstađa 1 - 5 af 23

Random Image

DSC00670.jpg

Skráiđ ykkur á póstlistann.






Lesblinda.is

LESBLINDA
SKRIFBLINDA
REIKNIBLINDA
ATHYGLISBRESTUR
OFVIRKNI